|
Skrifað af Linda Björg Þorgrímsdóttir
|
|
Laugardagur, 29 Nóvember 2008 17:13 |
|
Þá styttist óðum í jólin og fyrsti sunnudagur í aðventu er á morgun. Hefðin hér á landi er sú að þá er tekinn fram aðventukransinn og kertin fjögur sett á kransinn. Kveikt er svo á fyrsta kertinu á fyrsta sunnudag í aðventunni og koll af kolli fram að jólum á hverjum sunnudegi. Aðventukransinn er norður-evrópsk hefð. Fyrsta kertið nefnist spádómakertið sem á að minna á fyrirheit spámanna Gamla testamentisins sem höfðu sagt fyrir um komu frelsarans. Annað kertið nefnist Betlehemskertið þar er athygli beint að þorpinu sem Jesús fæddist. Þriðja kertið er hirðakertið en ómenntuðum og snauðum fjárhirðum voru sögð tíðindin góðu á undan öllum öðrum. Fjórða kertið nefnist englakertið og minnir á þá sem sögðu mannheimi fréttirnar af fæðingu Jesú. Sígræna grenið táknar lífið sem er í Kristi og táknar hringurinn eilífðina.
|