Esjan

Welcome to the Frontpage
Jökulsá á Fjöllum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Sunnudagur, 30 Nóvember 2008 16:20
Jökulsá á Fjöllum á upptök sín í norðanverðum Vatnajökli. Hún er önnur lengsta á landsins eða 206 km.  Vatnasvæði hennar er það stærsta á Íslandi eða um 7380 ferkílómetrar.  Hún á eins og fyrr segir upptök sín í norðanverðum Vatnajökli og liggur þaðan í tveimur kvíslum austan Ódáðahrauns og um Mývatnsöræfi þaðan niður í Kelduhverfi og hverfur síðan í Atlandshafið í Öxarfirði.  Helstu fossar í Jökulsá á Fjöllum eru Dettifoss, Selfoss, Réttarfoss og Hafragilsfoss.  Margir vinsælir ferðamannastaðir eru í nánd við Jökulsá á Fjöllum má þar helst nefna Ásbyrgi, Hljóðakletta og jökulgljúfrin neðan Dettifoss.
Síðast uppfært ( Sunnudagur, 30 Nóvember 2008 16:36 )
 
Jólin nálgast! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Laugardagur, 29 Nóvember 2008 17:13

jolakrans Þá styttist óðum í jólin og fyrsti sunnudagur í aðventu er á morgun. Hefðin hér á landi er sú að þá er tekinn fram aðventukransinn og kertin fjögur sett á kransinn. Kveikt er svo á fyrsta kertinu á fyrsta sunnudag í aðventunni og koll af kolli fram að jólum á hverjum sunnudegi. Aðventukransinn er norður-evrópsk hefð. Fyrsta kertið nefnist spádómakertið sem á að minna á fyrirheit spámanna Gamla testamentisins sem höfðu sagt fyrir um komu frelsarans. Annað kertið nefnist Betlehemskertið þar er athygli beint að þorpinu sem Jesús fæddist. Þriðja kertið er hirðakertið en ómenntuðum og snauðum fjárhirðum voru sögð tíðindin góðu á undan öllum öðrum. Fjórða kertið nefnist englakertið og minnir á þá sem sögðu mannheimi fréttirnar af fæðingu Jesú. Sígræna grenið táknar lífið sem er í Kristi og táknar hringurinn eilífðina. Innocent

 
Áhugaverð ráðstefna 1. des um ICT in Education Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Föstudagur, 28 Nóvember 2008 15:04

Takið eftir að þann 1. desember verður málstofan

What can ICT do for Higher Education?

Í þessari málstofu taka nokkrir Íslendingar þátt og hægt er að taka þátt á Netinu.

Hér er nánari kynning:

A Nordic Symposium on ICT and distance education in Higher Education.

Welcome to a symposium on the use of ICT and distance education methods in Higher Education. This theme will be discussed from various points of view with the aim of helping participants to establish a clearer idea about what ICT support for learning has achieved, and in which directions institutes of higher education aim to develop in the future. Speakers represent five Nordic countries and different opinions about how the use of technology affects adult learning in higher education. This Symposium is open for all. The target group is teachers and administrators in higher education, but these discussions should also be of interest to all who are interested in using technology to support adult learning. 

 
Slökkviliðið varar við frostskemmdum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Laugardagur, 29 Nóvember 2008 11:54

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu varar fólk við frostskemmdum í loftræstikerfum og annars staðar þar sem vatnsleiðslur geta frosið. Undir morgun sprakk vatnsleiðsla í Víkinni, íþróttahúsi Víkings í Fossvoginum.

Frostið fór niður í sex gráður á höfuðborgarsvæðinu í morgun
 
Prufa- Stjörnuspáin í dag Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Föstudagur, 28 Nóvember 2008 14:43
HRÚTUR 21. mars - 19. apríl
Þú gefur gjafir, gerir rausnarlega samninga eða gefur með þér. Veldu verkefni til þess að fylgja eftir.
NAUT 20. apríl - 20. maí
Viðskiptin ganga vel. Kannski af því að þig langar til að vera innan um fólk. Ekki láta sjá þig með hverjum sem er.
TVÍBURAR 21. maí - 20. júní
Nú er rétti tíminn fyrir þig til þess að söðla alveg um. Varastu bara að gera ekki of mikið úr hlutunum eða ganga of langt.
KRABBI 21. júní - 22. júlí
Það er svo sem allt í lagi að endurtaka sig tvisvar, þrisvar sinnum. Hann fer létt með að klára verkefni tengd dánarbúum, erfðamálum og sameiginlegum eigum.
LJÓN 23. júlí - 22. ágúst
Furðulegar tilviljanir ýta undir ofsóknarkennd - er eitthvað samsæri í gangi? Nei, reyndar ekki. Best er að ganga frá mikilvægum samningum eða kaupum seinnipartinn.
MEYJA 23. ágúst - 22. september
Er einhver samkeppni í gangi? Ógnar skynsemi þín yfirmanninum? Það gæti verið.
VOG 23. september - 22. október
Vogin er mælskan uppmáluð þegar sá gállinn er á henni. En stundum er allt í lagi að sleppa örlítið fram af sér beislinu, ef menn bara muna að ganga hægt um gleðinnar dyr.
SPORÐDREKI 23. október - 21. nóvember
Láttu það eftir þér að skvetta svolítið úr klaufunum en gættu allrar háttvísi. Gættu þess þó að taka tillit til þinna nánustu.
BOGMAÐUR 22. nóvember - 21. desember
Nýtt samband stendur og fellur með viðhorfi bogmannsins. Ekki hika við að sýna þeim væntumþykju, sem þú umgengst reglulega.
STEINGEIT 22. desember - 19. janúar
Þú gætir haft gaman af góðri rökræðu í dag. Spurðu krefjandi spurninga svo hægt sé að varpa ljósi á málið.
VATNSBERI 20. janúar - 18. Febrúar
Þú þarft að sýna sveigjanleika til þess að festast ekki í einhverju óheillafari sem skemmir allt fyrir þér. En þú þarft bara að takast á við vandann með hetjulund.
FISKAR 19. febrúar - 20. mars
Það er næsta víst að þú átt eftir að rekast á gamla sénsa eða maka. Reyndu að halda þig fjarri honum svo engin leiðindi komi upp á.
Síðast uppfært ( Föstudagur, 28 Nóvember 2008 15:03 )
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Polls

Flokkur?
 

Who's Online

Það er/u 2 gestir inni

Advertisement

Featured Links:
Joomla!
Joomla! The most popular and widely used Open Source CMS Project in the world.
JoomlaCode
JoomlaCode, development and distribution made easy.
Joomla! Extensions
Joomla! Components, Modules, Plugins and Languages by the bucket load.
Joomla! Shop
For all your Joomla! merchandise.
Borði
© 2010 Esjan. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfinu.