Yesterday all servers in the U.S. went out on strike in a bid to get more RAM and better CPUs. A spokes person said that the need for better RAM was due to some fool increasing the front-side bus speed. In future, buses will be told to slow down in residential motherboards.
You are here
Home
Welcome to the Frontpage
VErkefni hjá Ingunni
Skrifað af Administrator
Föstudagur, 13 Febrúar 2009 15:00
Ingunn er að hugsa um að gera verkefnabanka sem á að vera föndurhugmyndir fyrir ung börn. Hún gæti t.d. haft ljósmyndir af föndurhugmyndum, sniðmát til að prenta út, myndabanka (t.d. myndir í vektoraforritinu Inkscape) og alls kyns tól eins og stimpla í Tuxpaint.
Súkkulaðikökur
Skrifað af Ingveldur Jónsdóttir
Mánudagur, 15 Desember 2008 01:49
Súkkulaðikökur 180-200 °c í 9-11 mín. 2 1/4 bolli hveiti 1 tsk. matarsódi 1 tsk. salt blanda í: 200 gr. smjörlíki 3/4 bolli sykur 3/4 bolli púðursykur 1 tsk. vanilludropar
bæta svo svo í: 2 egg hveiti 2 bolla súkkulaði í bitum (Nestlé Semi-Sweet Morsels) 1/2 pk. :340 gr.
Síðast uppfært ( Mánudagur, 15 Desember 2008 01:52 )
Síðast uppfært ( Mánudagur, 08 Desember 2008 22:27 )
Náttúran-aðdráttarafl Vestfjarða
Skrifað af Benedikt Sigurðsson
Mánudagur, 01 Desember 2008 12:34
Ferðamenn sem komu til Vestfjarða í sumar voru fyrst og fremst náttúruunnendur sem sóttu í frið og ró og eru almennt meðvitaðir um umhverfismál. Þetta kom fram í könnun sem gerð var meðal ferðamanna á Vestfjörðum í sumar á vegum Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum. Þar segir að samanburður við erlenda ferðamenn í Reykjavík sýndi að „náttúruferðamenn“ eru líklega afgerandi hópur meðal erlendra ferðamanna um allt land, ekki einungis á Vestfjörðum. Nær allir erlendu ferðamennirnir sem talað var við bæði í Reykjavík og á Vestfjörðum höfðu mikinn áhuga á náttúru og umhverfismálum. Það sem greindi ferðamennina á Vestfjörðum og í Reykjavík að var kannski fyrst og fremst meiri áhugi á fuglaskoðun og ljósmyndun hjá þeim ferðamönnum sem sóttu Vestfirði heim.
Langflestir svarendur könnunarinnar nefndu náttúruna sem helstu ástæðu fyrir heimsókn til Vestfjarða eða 57,5%. Í tengslum við það var Látrabjarg oftast nefnt, næst á eftir komu Hornstrandir og svo Rauðasandur. Aðrir staðir voru nefndir sjaldnar.
Því næst kom útivistin sem 49,5% svarenda nefndu og svo hvíld og afslöppun sem 48,9% nefndu sem ástæðuna fyrir komunni vestur. Aðrir valmöguleikar voru sjaldnar nefndir. Þessir sömu þrír valmöguleikar voru oftast nefndir þegar svörun var skipt eftir erlendum og innlendum ferðamanna, en nokkuð stórt hlutfall ferðamanna búsettra á Íslandi nefndu einnig heimsókn til vina/ættingja og að þeir hefðu komið áður og langaði að koma aftur.
Í skýrslu um niðurstöður könnunarinnar segir að það sé almennt einkennandi fyrir „náttúruferðamenn“ að þeir krefjast lítillar þjónustu og afþreyingar af ferðamannastaðnum en leggja megin áherslu á upplifun á hinu „ósnerta“ eða „óhefðbundna.“ „Það má segja að þetta sé einkennandi fyrir núverandi stig ferðamennsku á Vestfjörðum a.m.k. ef einungis er litið til erlendra ferðamanna sem ferðast á eigin vegum. Það má þó gera ráð fyrir því að fylgi Vestfirðir sem ferðamannastaður hefðbundinni þróun með fjölgun ferðamanna breytist samsetning og áhugasvið ferðamannanna sem hingað koma samhliða.“