Esjan

Welcome to the Frontpage
VErkefni hjá Ingunni Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Föstudagur, 13 Febrúar 2009 15:00

Ingunn er að hugsa um að gera verkefnabanka sem á að vera föndurhugmyndir fyrir ung börn. Hún gæti t.d. haft ljósmyndir af föndurhugmyndum, sniðmát til að prenta út, myndabanka (t.d. myndir í vektoraforritinu Inkscape) og alls kyns tól eins og stimpla í Tuxpaint.

 

 
Súkkulaðikökur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Mánudagur, 15 Desember 2008 01:49

 

Súkkulaðikökur
180-200 °c í 9-11 mín.

2 1/4 bolli hveiti
1 tsk. matarsódi
1 tsk. salt

blanda í:
200 gr. smjörlíki
3/4 bolli sykur
3/4 bolli púðursykur
1 tsk. vanilludropar

bæta svo svo í:
2 egg
hveiti
2 bolla súkkulaði í bitum (Nestlé Semi-Sweet Morsels) 1/2 pk. :340 gr.

 

Síðast uppfært ( Mánudagur, 15 Desember 2008 01:52 )
 
animoto prufa Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Fimmtudagur, 04 Desember 2008 16:38

<script type="text/javascript" src="http://widgets.clearspring.com/o/46928cc51133af17/493807376e344180/46928cc5788deb29/bbfcf430/-cpid/7ef03a184058f669/autostart/false/repeat/false/widget.js"></script>

 
Jólasveinarnir Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Mánudagur, 08 Desember 2008 22:16

Segja vil ég sögu

af sveinunum þeim,

sem brugðu sér hér forðum

á bæina heim.

 

Þeir uppi á fjöllum sáust, 

- eins og margur veit, -

í langri halarófu

á leið niður í sveit.

 

Grýla var þeirra móðir 

og gaf þeim tröllamjólk,

en pabbinn Leppalúði,

- það var leiðindafólk.

 

Þeir jólasveinar nefndust, 

- um jólin birtust þeir.

Og einn og einn þeir komu,

en aldrei tveir og tveir.

 

Þeir voru þrettán

þessir heiðursmenn,

sem ekki vildu ónáða

allir í senn.

 

Að dyrunum þeir læddust

og drógu lokuna úr.

Og einna helst þeir leituðu

í eldhús og búr.

 

Lævísir á svipinn

þeir leyndust hér og þar,

til óknyttanna vísir,

ef enginn nærri var.

 

Og eins, þó einhver sæi,

var ekki hikað við

að hrekkja fólk og trufla

þess heimilisfrið.

           Jóhannes úr Kötlum.

 

Síðast uppfært ( Mánudagur, 08 Desember 2008 22:27 )
 
Náttúran-aðdráttarafl Vestfjarða Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Mánudagur, 01 Desember 2008 12:34
Ferðamenn sem komu til Vestfjarða í sumar voru fyrst og fremst náttúruunnendur sem sóttu í frið og ró og eru almennt meðvitaðir um umhverfismál. Þetta kom fram í könnun sem gerð var meðal ferðamanna á Vestfjörðum í sumar á vegum Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum. Þar segir að samanburður við erlenda ferðamenn í Reykjavík sýndi að „náttúruferðamenn“ eru líklega afgerandi hópur meðal erlendra ferðamanna um allt land, ekki einungis á Vestfjörðum. Nær allir erlendu ferðamennirnir sem talað var við bæði í Reykjavík og á Vestfjörðum höfðu mikinn áhuga á náttúru og umhverfismálum. Það sem greindi ferðamennina á Vestfjörðum og í Reykjavík að var kannski fyrst og fremst meiri áhugi á fuglaskoðun og ljósmyndun hjá þeim ferðamönnum sem sóttu Vestfirði heim.

Langflestir svarendur könnunarinnar nefndu náttúruna sem helstu ástæðu fyrir heimsókn til Vestfjarða eða 57,5%. Í tengslum við það var Látrabjarg oftast nefnt, næst á eftir komu Hornstrandir og svo Rauðasandur. Aðrir staðir voru nefndir sjaldnar.

Því næst kom útivistin sem 49,5% svarenda nefndu og svo hvíld og afslöppun sem 48,9% nefndu sem ástæðuna fyrir komunni vestur. Aðrir valmöguleikar voru sjaldnar nefndir. Þessir sömu þrír valmöguleikar voru oftast nefndir þegar svörun var skipt eftir erlendum og innlendum ferðamanna, en nokkuð stórt hlutfall ferðamanna búsettra á Íslandi nefndu einnig heimsókn til vina/ættingja og að þeir hefðu komið áður og langaði að koma aftur.

Í skýrslu um niðurstöður könnunarinnar segir að það sé almennt einkennandi fyrir „náttúruferðamenn“ að þeir krefjast lítillar þjónustu og afþreyingar af ferðamannastaðnum en leggja megin áherslu á upplifun á hinu „ósnerta“ eða „óhefðbundna.“ „Það má segja að þetta sé einkennandi fyrir núverandi stig ferðamennsku á Vestfjörðum a.m.k. ef einungis er litið til erlendra ferðamanna sem ferðast á eigin vegum. Það má þó gera ráð fyrir því að fylgi Vestfirðir sem ferðamannastaður hefðbundinni þróun með fjölgun ferðamanna breytist samsetning og áhugasvið ferðamannanna sem hingað koma samhliða.“
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Polls

Flokkur?
 

Who's Online

Það er/u 1 gestur inni

Advertisement

Featured Links:
Joomla!
Joomla! The most popular and widely used Open Source CMS Project in the world.
JoomlaCode
JoomlaCode, development and distribution made easy.
Joomla! Extensions
Joomla! Components, Modules, Plugins and Languages by the bucket load.
Joomla! Shop
For all your Joomla! merchandise.
Borði
© 2010 Esjan. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfinu.